Skilmálar, skila- og sendingareglur

Sendingar- og skilareglur

Sendingarreglur

Allar pantanir eru afgreiddar innan 1–3 virkra daga.

Ísland

Ég býð upp á afhendingu með Dropp á hvaða afhendingarstað Dropp sem er. Einnig er hægt að sækja sendinguna endurgjaldslaust á vinnustofuna mína að:
114 space (Hlemmur.haus)
Laugavegur 114, 105, Reykjavík
Í afgreiðslu verslunar eða á vinnustofu

Nánari upplýsingar um afhendingu fást með því að senda tölvupóst á yr@yrurari.com

Sendingar til útlanda

Allar vörur eru sendar frá vinnustofunni minni á Íslandi með DHL Express innan 1–3 daga og fylgja sendingarnúmer. Afhendingartími er mismunandi eftir löndum.

Hafðu samband við mig á yr@yrurari.com ef þú hefur einhverjar spurningar eða fyrirspurnir varðandi pantanir.

 

Skilareglur

Ég býð upp á 14 daga skilafrest á vörum mínum, sem þýðir að þú hefur 14 daga frá því að þú tekur við vörunni til að óska eftir skilum.


Til að vara sé gjaldgeng til skila þarf hún að vera í sama ástandi og þegar þú tókst við henni, ónotuð og óþvegin, með merkimiðum.

Til að hefja skilaferlið geturðu haft samband við mig á yr@yrurari.com . Ef ég samþykki skilin geturðu sent vörurnar á
Sýnishorn
Sundaborg 1, 2. hæð
104 Reykjavík, Ísland
Vinsamlegast láttu símanúmer og netfang fylgja: +354 6625032 og yr@yrurari.com

Ýrúrarí ber ekki ábyrgð á sendingarkostnaði vegna skila. Áður en vörur eru sendar til baka þarf að óska eftir skilum í tölvupósti og fá þau samþykkt.

Endurgreiðslur
Ég læt þig vita þegar ég hef móttekið og yfirfarið vöruna sem þú sendir til baka og hvort endurgreiðslan hafi verið samþykkt. Ef hún er samþykkt verður upphæðin sjálfkrafa endurgreidd með sama greiðslumáta og þú notaðir við kaupin. Athugaðu að það getur tekið bankann þinn eða kreditkortafyrirtækið einhvern tíma að afgreiða og bóka endurgreiðsluna.

Athugaðu að Ýrúrarí er enn sem komið er rekið eingöngu af mér, Ýri, svo afgreiðsluhraði pantana getur verið breytilegur eftir dagskránni minni.