Ýrúrari
Íslenskur ullartrefill
Íslenskur ullartrefill
Ekki tókst að hlaða framboð á afhendingu
Deila
Íslenskur ullartrefill
Fyrstu tilbúnu treflarnir sem ég hef gert á vinnustofunni minni úr 100% íslenskri ull. Mynstrið kom til mín seint um kvöld þegar ég var að reyna að sofna, en hugurinn var enn á vinnustofunni og velti fyrir sér hvernig ég gæti komið íslensku ullinni í gegnum prjónavélina mína. Mynstrið reyndist henta íslenska einbandinu fullkomlega.
Íslenska ullin er heldur grófari en venjuleg lambsull, en ver þig einstaklega vel fyrir vindi og kulda.
Hönnunin var hluti af sýningunni minni „Prótótýpa I“ á DesignMarch í Reykjavík árið 2025.
Stærð u.þ.b. 192 x 35 cm
Handþvoið í volgu vatni eða á ullarprógrammi (ekki hærra en 40°C). Setjið ekki í þurrkara.
Allt prjón frá Ýrúrarí er framleitt með sjónarmiðið að lágmarka efnissóun og öllum afgöngum er safnað saman fyrir framtíðarverkefni.
Athugið að þessi vara er ekki verksmiðjuframleidd, heldur prjónuð á stafræna prjónavél á vinnustofu Ýrar sem sér um allan frágang, þannig að smávægilegur munur getur verið á vörunni og myndunum. Gæði hverrar vöru eru yfirfarin áður en hún er send.
