Fara beint í vöruupplýsingar
1 af 4

Ýrúrari

Stara peysa

Stara peysa

Venjulegt verð $990.00 USD
Venjulegt verð Útsöluverð $990.00 USD
Útsala Uppi

Stara

Notuð bómullarpeysa sem hefur gengið í gegnum mjög tilraunakennda yfirhalningu. Hún er með þykkar krullaðar augabrúnir prjónaðar úr blöndu af afgangsgarni, brosandi augu og munn með starandi augnaráði. Sumar hugmydnir af peysuviðgerðum geta komið verulega á óvart, þessi peysa er svo sannarlega ein þeirra og mjög einstakt verk eftir Ýrúrarí.

Stara-peysan var hluti af sýningunni „Nævera“ sem var sett upp í Hönnunarsafni Íslands og í Nordatlantens Brygge í Kaupmannahöfn árin 2023–2024.

Stærð: M (38–40 í evrópskum stærðum)

Handþvoið í volgu vatni, setjið ekki í þurrkara.

Athugið að þetta er einstakt verk og verður ekki endurframleitt. Sendið tölvupóst á yr@yrurari.com ef spurningar vakna um verkið.

Sjá nánari upplýsingar