Ýrúrari
Lítill trefill fyrir kalt vor
Lítill trefill fyrir kalt vor
Ekki tókst að hlaða framboð á afhendingu
Deila
Lítill trefill fyrir kalt vor
Trefillinn er hannaður út frá skissum og tilraunum sem urðu til þegar dagarnir fóru loks að lengjast eftir langan og dimman íslenskan vetur. Þessi blómstrandi trefill heldur góðri hlýju úti og inni á svölum vordögum.
Trefillinn var hluti af sýningunni minni „Prótótýpa I“ á DesignMarch í Reykjavík árið 2025.
Prjónaður úr 100% breskri lambsull
Stærð um það bil 224 x 8 cm
Handþvoið í volgu vatni eða á ullarprógrammi (ekki hærra en 40°C). Setjið ekki í þurrkara.
Allt prjón frá Ýrúrarí er framleitt með sjónarmiðið að lágmarka efnissóun og öllum afgöngum er safnað saman fyrir framtíðarverkefni.
Athugið að þessi vara er ekki verksmiðjuframleidd, heldur prjónuð á stafræna prjónavél á vinnustofu Ýrar sem sér um allan frágang, þannig að smávægilegur munur getur verið á vörunni og myndunum. Gæði hverrar vöru eru yfirfarin áður en hún er send.
