Ýrúrari
Ullandi hálskragi
Ullandi hálskragi
Ekki tókst að hlaða framboð á afhendingu
Deila
-Prjónað og hannað af Ýri á vinnustofu hennar í Reykjavík
-100% merínó-lambsull spunnin í Bretlandi
- Þrjár áfastar tungur handprjónaðar
- Um það bil 30 cm djúpt og 54 cm í ummál
Ullandi hálskraginn sækir innblástur í andlitsgrímurnar mínar frá árinu 2020 og gerir notandanum kleift að leika sér með svipbrigðin þegar hann klæðist kraganum.
Kraginn er prjónaður með jacquard-aðferð, sem gerir efnið þykkt og hlýtt.
Handþvoið í volgu vatni eða á ullarprógrammi (ekki hærra en 40°C). Ekki setja í þurrkara.
Allt prjón frá Ýrúrarí er framleitt með sjónarmiðið að lágmarka efnissóun og öllum afgöngum er safnað saman fyrir framtíðarverkefni.
Athugið að þessi vara er ekki verksmiðjuframleidd, heldur prjónuð á stafræna prjónavél á vinnustofu Ýrar sem sér um allan frágang, þannig að smávægilegur munur getur verið á vörunni og myndunum. Gæði hverrar vöru eru yfirfarin áður en hún er send.
